Jói Fel kjörinn formaður

Jói Fel að störfum.
Jói Fel að störfum. mbl.is/Eggert

Bakarinn Jóhannes Felixson, eða Jói Fel, hefur verið kjörinn formaður Landssambands bakarameistara.

Aðalfundur sambandsins, LABAK, fór fram á dögunum, að því er kemur fram á vef Samtaka iðnaðarins.  

Jón Albert Kristinsson, sem hefur gegnt formannsembættinu síðustu þrjú ár, gaf ekki kost á sér til áframhaldandi stjórnarsetu. Jóhannes var kjörinn í hans stað.

Jói Fel sat samfellt í stjórn sambandsins í 15 ár, þar af 7 ár sem formaður.

Róbert Óttarsson og Sigurbjörg Sigurjónsdóttir koma ný inn í stjórn sambandsins í stað Jóns Þórs Lúðvíkssonar og Reynis Carls Þorleifssonar.

Sigurbjörg er fyrsta konan til að sitja í stjórn LABAK.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert