Kærðir fyrir brot á hvíldartíma

Foktjón varð á nokkrum ökutækjum við Jökulsárlón og á Breiðamerkursandi …
Foktjón varð á nokkrum ökutækjum við Jökulsárlón og á Breiðamerkursandi á föstudag. Ljósmynd/Lögreglan á Suðurladi

Lögreglan á Suðurlandi fór í viðamikið verkefni í upphafi síðustu viku ásamt starfsmönnum ríkisskattstjóra sem fólst í eftirliti með ökumönnum hópferðabifreiða. Hugað var að rekstrarleyfum, aksturs- og hvíldartímum og fleiru.

Afskipti voru höfð af 52 ökumönnum. Fimm þeirra voru kærðir fyrir brot á notkun ökurita og hvíldartíma, tveir voru boðaðir með ökutæki í skoðun og ríkisskattstjóri birti sjö ökumönnum tilmæli um lagfæringar.

Umferðareftirlit lögreglunnar á Suðurlandi heldur uppi stöðugu eftirliti með hóp- og vöruflutningabílum auk þess að sinna öðrum þeim verkefnum sem snúa að umferðinni.

Missti stjórn á bíl

Sautján umferðaróhöpp voru tilkynnt til lögreglunnar á Suðurlandi í síðustu viku. Í einu tilviki var um ölvunarakstur að ræða er ökumaður missti stjórn á bifreið sinni sem valt á Hrunavegi skammt frá Grafarbakka aðfaranótt fimmtudags. Hann kastaðist út úr bifreiðinni og fótbrotnaði. Félagi hans sem var með honum hlaut minni háttar áverka. Ökumaðurinn var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítala þar sem gert var að beinbrotinu.

Foktjón á ökutækjum

Foktjón varð á nokkrum ökutækjum við Jökulsárlón og á Breiðamerkursandi á föstudag. Hvassviðri gekk yfir svæðið og hlaust af því tjón á rúðum og lakki nokkurra bifreiða sem tilkynnt var um og lögreglumenn á Höfn sinntu.

Tilkynning barst lögreglu í Vík um fé í lausagöngu á og við þjóðveg 1 í Mýrdal. Leyst var úr málinu. Þegar vorið er í nánd verða ökumenn að hafa fulla aðgát vegna lausagöngu búfjár.

Innbrot í sumarbústað

Tilkynnt var um innbrot í sumarbústað við Laugarvatn og þjófnað á verkfærum. Farið var um nágrenni þess bústaðar til að athuga hvort brotist hafi verið inn í fleiri hús. Í ljós kom að farið hafði verið inn í einn bústað til viðbótar. Talið er að innbrotin hafi átt sér stað á tímabilinu frá 16. til 21. mars.

Brotist inn í gám

Aðfaranótt miðvikudags var brotist inn í gám á Þingvöllum og úr honum stolið nokkuð af ýmsum verkfærum. Gámurinn er í eigu Ræktunarsambands Flóa og Skeiða sem er að bora eftir vatni á svæðinu.

Í síðustu viku voru 34 kærðir fyrir hraðakstur. Mestur hraði mælist yfirleitt hjá ökumönnum sem aka eftir þjóðvegi 1 austan við Vík áleiðis að Höfn. Tveir af þeim sem kærðir voru í vikunni ók þar á yfir 140 km og allt að 150 km. Á þessum vegarkafla má oft búast við búfé, og er austrar dregur hreindýrum, við veginn sem hlaupa fyrirvaralaust yfir hann.
Fimm ökumenn voru kærðir fyrir ölvunarakstur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert