Óvenjumargir fluttu til landsins

mbl.is/Þórður Arnar

Árið 2016 fluttust óvenjumargir frá útlöndum til Íslands og voru aðfluttir umfram brottflutta 4.069 manns. Það eru mun fleiri en árið á undan þegar 1.451 fleiri fluttust til landsins en frá því.

Á árunum 2006 og 2007 fluttust um 5.200 fleiri til landsins en frá því og eru það einu árin þar sem flutningsjöfnuður hefur verið hærri en í fyrra.

Á árinu fluttust 10.958 til landsins, samanborið við 7.461 á árinu 2015. Árið 2007 er eina árið sem fleiri fluttust til landsins en á síðasta ári, eða 12.546. Alls fluttust 6.889 manns frá Íslandi árið 2016 samanborið við 6.010 árið 2015. Ef einungis er litið til erlendra ríkisborgara var flutningsjöfnuður 4.215 manns. Flutningsjöfnuður meðal íslenskra ríkisborgara var aftur á móti neikvæður, brottfluttir voru 146 fleiri en aðfluttir.

Af þeim 3.245 íslensku ríkiborgurum sem fluttu af landi brott árið 2016 fóru 2.134 til Noregs, Danmerkur eða Svíþjóðar. Flestir fluttu til Danmerkur, eða 993, en næstflestir til Svíþjóðar (622). Flestir aðfluttir íslenskir ríkisborgarar komu einnig frá þessum löndum eða 2.149 af 3.099, flestir frá Noregi eða 857.

Á sama tíma fluttust flestir erlendir ríkisborgarar til Póllands, eða 1.089 af 3.644. Þaðan komu líka 2.826 erlendir ríkisborgarar. Hafa aðfluttir umfram brottflutta frá Póllandi ekki verið fleiri síðan á árunum 2006-2007.

Flestir á aldrinum 20-29 ára

Árið 2016 var fjölmennasti hópur aðfluttra og brottfluttra á aldrinum 20-29 ára. Tæplega 43% brottfluttra voru á þessu aldursbili og rúmlega 39% aðfluttra. Af einstökum árgöngum var 24 ára fjölmennasti hópurinn af brottfluttum (363) en 26 ára af þeim sem fluttu til landsins, eða 520, segir í frétt á vef Hagstofu Íslands.

Eins og verið hefur frá árinu 1996 eru einstaklingar með pólskt ríkisfang fjölmennastir aðfluttra erlendra ríkisborgara árið 2016. Á þessu var þó undantekning árið 2004, þegar einstaklingar með portúgalskt ríkisfang voru fjölmennastir aðfluttra erlendra ríkisborgara. Fyrir 1996 voru danskir ríkisborgarar oftast fjölmennastir erlendra ríkiborgara sem fluttust til landsins. Til landsins fluttust 2.873 einstaklingar með pólskt ríkisfang árið 2016. Einstaklingar með pólskt ríkisfang voru einnig fjölmennastir þeirra erlendu ríkisborgara sem fluttu frá landinu árið 2016, eða 1.117.

Körlum fjölgar vegna búferlaflutninga
Árið 2016 fluttu 2.899 fleiri karlar til landsins en frá því og 1.170 konur. Fram til ársins 2003 fluttust að jafnaði fleiri konur til landsins en karlar. Þessi þróun snerist við á tímabilinu frá 2004–2008. Á þeim árum fluttust til landsins samtals 4.215 fleiri karlar en konur. Árin 2009-2012 fluttust hins vegar samtals 4.114 fleiri karlar en konur úr landi umfram aðflutta. Í fyrra bar svo við að 1.729 fleiri karlar en konur fluttust til landsins sem er umtalsverð aukning.

Fjöldi innanlandsflutninga náði hámarki á árinu 2007 en þá voru tilkynntir flutningar 58.186 einstaklinga. Eftir það fækkaði innanlandsflutningum jafnt og þétt og náðu þeir lágmarki sínu árið 2010 þegar 46.535 einstaklingar skiptu um lögheimili. Árið 2011 varð aftur á móti fjölgun í fyrsta sinn frá árinu 2007 en þá mældust innanlandsflutningar 49.398. Árið 2016 voru þeir 55.266 sem er fjölgun um 1.198 milli ára. Flestir þeirra voru flutningar innan sveitarfélags eða 34.830. Alls fluttu 11.591 einstaklingur milli sveitarfélaga innan sama landsvæðis árið 2016 en 8.845 fluttu frá einu landsvæði til annars.

Flutningsjöfnuðurinn innanlands hagstæðastur á Suðurnesjunum
Þegar aðeins er horft til flutninga innanlands milli landshluta eru einungis tveir landshlutar með hagstæðan flutningsjöfnuð árið 2016. Flutningsjöfnuðurinn var hagstæðastur á Suðurnesjum, en þangað fluttu 562 umfram brottflutta frá landsvæðunum átta. Einnig var flutningsjöfnuðurinn hagstæður á Suðurlandi (98). Aðrir landshlutar voru með neikvæðan flutningsjöfnuð vegna innanlandsflutninga. Óhagstæðastur var hann á höfuðborgarsvæðinu (-233) og Austurlandi (-146).

Árið 2016 nutu öll landsvæði góðs af flutningum milli landa enda flutningsjöfnuður þeirra jákvæður. Rúmleg helmingur þeirra 4.069 sem fluttust til Íslands umfram brottflutta enduðu á höfuðborgarsvæðinu (2.210). Þegar litið er til flutninga bæði innanlands og utan voru Vestfirðir (-42) og Austurland (-27) einu landsvæðin sem voru með neikvæðan flutningsjöfnuð árið 2016.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert