Guðni Th. og Guðlaugur Þór funda með Pútín

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands …
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands funduðu með Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Ljósmynd/Utanríkisráðuneytið

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, og Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra, áttu í dag fund með Vladimír Pútín Rússlandsforseta, í Arkhangelsk í Rússlandi, þar sem þeir taka þátt í ráðstefnu um málefni norðurslóða. Voru tvíhliða samskipti Íslands og Rússlands, viðskipti, og ýmis alþjóðamál rædd á fundinum, m.a. innflutningsbann Rússa á íslenskar vörur og norðurslóðamál.

„Þetta var góður fundur. Samskipti okkar eiga sér langa sögu og varða allt frá viðskiptum og menningu til öryggismála. Þó við séum vissulega ekki sammála um allt, er mikilvægt að við gætum þess að eiga regluleg samskipti og ræða saman í hreinskilni,“ er haft eftir Guðlaugi Þór í fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Þvingunaraðgerðir vestrænna ríkja og innflutningsbann Rússlands voru meðal umræðuefna og segir í tilkynningunni að Guðlaugur Þór hafi m.a. bent á hversu umfangsmiklar gagnaðgerðir rússneskra stjórnvalda hefðu neikvæð áhrif á viðskipti ríkjanna og beindust einnig gegn rússneskum almenningi. Innflutningsbannið hefði meðal annars leitt til þess að fiskneysla í Rússlandi hefði dregist saman um 30%.

Þá nefndi ráðherrann málefni tengd rússneska matvælaeftirlitinu, þar sem bönn og flóknir ferlar hafa leitt til vandamála fyrir íslensk fyrirtæki um nokkurt skeið.

Málefni norðurslóða voru og til umræðu en gott samstarf hefur verið á mörgum málefnasviðum, t.d. innan Norðurskautsráðsins og var á fundinum lögð áhersla á að svo yrði áfram. Eins er sagður áhugi á samvinnu íslenskra og rússneskra fyrirtækja á sviði nýsköpunar og jarðhita í austurhluta Rússlands, sem og samstarfi í tengslum við sjávarútveg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert