Í okkar fjölskyldu eru engar djúpar raddir

Hallveig, Hildigunnur og Þorbjörn undir Hamrinum í Hafnarfirði og Þorbjörn …
Hallveig, Hildigunnur og Þorbjörn undir Hamrinum í Hafnarfirði og Þorbjörn með nóturnar að Jóhannesarpassíunni i fanginu, en þau hlakka öll óskaplega mikið til að syngja verkið um næstu helgi. mbl.is/Golli

Rúnarsbörn eru söngglöð systkini og raddir þeirra liggja allar hátt, systurnar eru sópranar og bræðurnir tenórar. Þau ólust upp við söng frá blautu barnsbeini og þakka foreldrum sínum fyrir þann grunn sem þau lögðu að þeirra sönglífi.

Þrjú þessara systkina ætla að syngja saman Jóhannesarpassíu um næstu helgi, en hana segja þau vera kraftbirtingarhljóm Guðdómsins.

Við segjum stundum að við séum skilgetin afkvæmi Pólýfónkórsins, en foreldrar okkar, Guðfinna Dóra Ólafsdóttir og Rúnar Einarsson, kynntust í þeim kór. Þau eru afar músíkölsk og fóru bæði í söngnám, en á þeim tíma sem þau voru ung var meira en að segja það að leggja fyrir sig söng. Þau stofnuðu ásamt fleira fólki sönghópinn Hljómeyki þar sem við systkinin höfum öll sungið og tvö okkar gera það enn,“ segja systkinin Hallveig, Þorbjörn og Hildigunnur Rúnarsbörn, en þau syngja öll í Jóhannesarpassíu um næstu helgi, Hallveig og Þorbjörn sem einsöngvarar en Hildigunnur með Dómkórnum.

„Við höfum sungið saman nánast alla ævi og margoft komið fram saman opinberlega, og einu sinni sungum við öll systkinin fjögur saman einsöngstónleika, en fjórða systkinið, hann Ólafur, er líka einsöngvari.“

Fórum mikið með mömmu og pabba á söngæfingar

Þau segja að ólíkt því sem margir halda hafi fjölskyldan ekki alltaf verið að syngja saman á bernskuheimilinu. „Aftur á móti var heilmikið sungið heima hjá ömmu, enda spilaði hún á píanó og bróðir hennar var mikill söngmaður. En auðvitað fórum við mikið með mömmu og pabba á söngæfingar, og að því leyti ólumst við upp við söng. Mamma stjórnaði Skólakór Garðabæjar og við byrjuðum öll í þeim kór um svipað leyti og við hófum grunnskólanám og sungum í honum fram áunglingsár. Þar byrjaði uppeldið en áhersla á nótnalestur var mikil hjá mömmu í þeim kór, sem við búum vel að. Það er ómetanlegur grunnur fyrir okkur,“ segir Þorbjörn.

Systkinin öll með foreldrunum. Ólafur, Þorbjörn og Rúnar fyrir aftan …
Systkinin öll með foreldrunum. Ólafur, Þorbjörn og Rúnar fyrir aftan Guðfinnu Dóru, Hildigunni og Hallveigu. Fífa dóttir Hildigunnar, elsta barnabarnið, er lengst til hægri.


Þorgerður tók okkur opnum örmum í Hamrahlíðinni

Þau fóru öll áfram í aðra kóra þegar þau voru komin upp í framhaldsskóla og Hildigunnar stjórnaði kórnum í Fjölbraut í Garðabæ um tíma, þar sem þrjú systkinanna voru í námi, en Hallveig fór í Menntaskólann í Hamrahlíð.

„Bræður mínir keyrðu mig á fyrstu söngæfingar hjá Kór Menntaskólans við Hamrahlíð, fyrst Þorbjörn og svo Óli, og spurðu Þorgerði Ingólfsdóttur kórstjóra hvort þeir mættu vera með í kórnum þó þeir væru ekki í skólanum. Hún hélt það nú,“ segir Hallveig og Þorbjörn bætir við að Þorgerður hafi kannast við þá bræður úr World Youth Choir, heimskór æskufólks sem syngur um víða veröld, sem þeir bræður voru stofnfélagar í. „Við sungum þrjú systkinin saman á Spáni í þessum kór árið 1992, og þar hafði Þorgerður heyrt í okkur. Hún vissi því alveg af okkur bræðrum, en auk þess vantar alltaf karlaraddir í kóra, svo hún tók okkur opnum örmum og það var frábært að syngja með Hamrahlíðarkórnum,“ segir Þorbjörn og tekur fram að þetta séu tveir kórar, sem þau systkinin sungu öll í.

Gat ekki látið hlæja meira að mér í fjölskylduboðum

Þegar þau eru spurð hvort það sé samkeppni, metingur eða öfund innan systkinahópsins í söngnum, gera þau lítið úr því, en Þorbjörn segir að þau viðurkenni öll að Hallveig sé best. Hallveig reynir að mótmæla, en staðreyndin er sú að hún er sú eina sem hefur reynt að brasa við að vera í fullu starfi sem söngvari, eins og hún orðar það sjálf, en hjá hinum hefur það verið hliðarstarf. Hildigunnur fór aðra leið og er menntuð sem tónskáld og starfar við sitt fag og kennir í Listaháskólanum.

„Ég fór og lærði söng eftir að öll systkini mín höfðu gert það, ég gat ekki látið hlæja meira að mér í fjölskylduboðum. Ég var fljót að fara í gegnum söngnámið af því ég hafði svo góðan grunn frá mömmu sem lagði gríðarlega áherslu á raddbeitingu í barnakórnum, enda stóð Skólakór Garðabæjar bestu barnakórum í heiminum á sporði,“ segir Hildigunnur.

Þau segjast búa vel að öllum þeim góðu kórstjórum og raddþjálfurum sem þau hafa sungið hjá. „Við höfum unnið í gegnum tíðina með mörgum eldhugum sem við eigum margt gott að þakka. Mamma var ein af þeim, hún reif upp tónlistarlífið í Garðabæ og á bak við það var ómæld vinna.“

Við erum að sjálfsögðu með fjölskyldukór

Hallveig og Þorbjörn hafa bæði sungið Jóhannesarpassíu áður, Hallveig fyrst undir stjórn Kára Þormar en seinna með Ólavi Hátún, en Þorbjörn fyrst með Keith Reed og svo undir stjórn Jóns heitins Stefánssonar. Hildigunnur segist aldrei áður hafa sungið Jóhannesarpassíu, en passían hefur lengi verið í uppáhaldi hjá henni og hana langaði mikið til að syngja hana. „Ég var á sínum tíma í Kammerkór Dómkirkjunnar ásamt Hallveigu undir stjórn Kára, svo ég þekki hann og hann þekkir mína rödd, og ég spurði hvort ég mætti syngja með núna, sem var auðsótt.“

Þegar þau eru spurð að því hvað sé svona frábært við Jóhannesarpassíu, skortir ekki lýsingarorðin.

„Þetta er kraftbirtingarhljómur Guðdómsins,“ segir Hallveig og Hildigunnur bætir við að passían sé ótrúlega magnað gæsahúðarverk. „Mér finnst þetta verk standa upp úr af öllum verkum Bachs, og hann sjálfur standa upp úr meðal tónskálda,“ segir Þorbjörn og bætir við að verkið sé afar dramatískt, einskonar ópera.

Raddir systkinanna söngglöðu liggja allar hátt, systurnar eru sópranar og bræðurnir tenórar.

„Við erum að sjálfsögðu með fjölskyldukór og börnin okkar syngja öll, en þar eru engar djúpar raddir.“ Þegar þau eru spurð hvort það sé enginn laglaus eða raddlaus í fjölskyldunni segir Hallveig að maðurinn hennar sjái um að syngja þungarokk og Hildigunnur bætir við að hennar maður sjái um að hlusta á söng fjölskyldunnar, einhver verði að gera það.

Í aðdraganda páskanna

Dómkórinn, ásamt kammersveit og einsöngvurum, mun flytja þetta magnaða verk í tvígang í Langholtskirkju dagana 1. og 2. apríl næstkomandi.

Einsöngvarar verða Kristinn Sigmundsson bassi í hlutverki Jesú, Þorbjörn Rúnarsson tenór í hlutverki guðspjallamannsins, Fjölnir Ólafsson baritón í hlutverki Pílatusar, Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Hildigunnur Einarsdóttir alt. Stjórnandi er Kári Þormar.

Jóhannesarpassían sem er eitt af viðameiri verkum sem varðveist hafa eftir Jóhann Sebastían Bach, túlkar á áhrifaríkan hátt frásögn Jóhannesarguðspjallsins af handtöku og krossfestingu Jesú Krists. Í verkinu er texti guðspjallsins fluttur með sönglesi og mögnuðum kórköflum þar sem kórinn túlkar meðal annars ofsa og reiði múgsins eins og Jóhannes lýsir því. Inn á milli hljóma fagrar aríur og sálmar þar sem hin hryggilega atburðarás frásagnarinnar er hugleidd.

Þetta er í fyrsta skipti sem Dómkórinn flytur Jóhannesarpassíuna.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert