Fjórhjólaslys varð í Víðidal í Vestur-Húnavatnssýslu um hálffimmleytið í dag þegar karlmaður féll af hjóli sínu og meiddist á baki.
Að sögn lögreglunnar á Blönduósi var hann fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann í Reykjavík.
Maðurinn var einn á ferð þegar slysið varð og samkvæmt lögreglunni voru aðstæðurnar góðar.