Bílvelta við Gullinbrú

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Bílvelta varð við Gullinbrú í Reykjavík um klukkan hálfþrjú í nótt. Allir voru komnir út úr bifreiðinni þegar lögregla og sjúkrabifreið komu á vettvang.

Þrír voru í bifreiðinni og sluppu allir með minniháttar meiðsli.

Fólkinu var ekið á slysadeild Landspítalans af móður eins farþegans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert