260 hafa sótt um vernd í ár

AFP

85 einstaklingar sóttu um alþjóðlega vernd á Íslandi í mars, til samanburðar sóttu 48 einstaklingar um vernd í sama mánuði á síðasta ári. Fjöldi umsókna á fyrstu þremur mánuðum þessa árs var samanlagt 223 eða rúmlega 60% meiri en á sama tíma á síðasta ári (137). 

Ástralar og Bandaríkjamenn sækja um hæli hér

Það sem af er aprílmánuði hafa um 40 einstaklingar sótt um vernd og er heildarfjöldi umsókna á fyrstu 15 vikum ársins því kominn yfir 260. Áframhaldandi fjölgun umsókna það sem af er ári, samanborið við árið 2016, bendir til þess að heildarfjöldi umsókna um alþjóðlega vernd verði meiri í ár en í fyrra, segir á vef Útlendingastofnunar.

Umsækjendur í mars voru af 18 þjóðernum en flestir komu frá Albaníu (26) og Makedóníu (14). 54% umsækjenda komu frá ríkjum Balkanskagans. 76% umsækjenda voru karlkyns og 24% kvenkyns. 74% umsækjenda voru fullorðnir og 26% yngri en 18 ára. Tveir umsækjendur kváðust vera fylgdarlaus ungmenni. Meðal umsækjenda um hæli hér á landi í mars eru tveir Bandaríkjamenn og tveir Ástralar.

32 endursendir á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar

Niðurstaða fékkst í 141 umsókn um vernd í marsmánuði. 63 mál voru tekin til efnislegrar meðferðar en þar af voru 32 mál afgreidd í forgangsmeðferð og 31 í hefðbundinni efnismeðferð. 32 mál voru afgreidd með ákvörðun um endursendingu á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar, 2 umsóknum var synjað vegna þess að umsækjendur höfðu þegar fengið vernd annars staðar og 44 umsækjendur drógu umsóknir sínar til baka eða hurfu.

41 af 63 synjað en 22 fengu vernd

41 máli, af þeim 63 sem tekin voru til efnislegrar meðferðar, lauk með ákvörðun um synjun og 22 málum með ákvörðun um veitingu verndar, viðbótarverndar eða dvalarleyfis af mannúðarástæðum. Flestar veitingar voru til umsækjenda frá Afganistan (7) og Írak (6) en flestir þeirra sem fengu synjun komu frá Makedóníu (18) og Albaníu (11).

Um 545 einstaklingar njóta þjónustu í verndarkerfinu á Íslandi um þessar mundir, þar af eru um 215 manns í þjónustu hjá félagsþjónustu Reykjavíkurborgar, Hafnarfjarðarbæjar og Reykjanesbæjar, á grundvelli þjónustusamninga við Útlendingastofnun. Móttöku- og þjónustuteymi Útlendingastofnunar veita um 330 einstaklingum þjónustu í búsetuúrræðum stofnunarinnar.

Stoðdeild Ríkislögreglustjóra flutti 70 einstaklinga úr landi í mars. 60 einstaklingar til viðbótar yfirgáfu landið sjálfviljugir, þar af 43 með stuðningi Útlendingastofnunar og 8 með stuðningi Alþjóða fólksflutningastofnunarinnar (IOM).

Málsmeðferðartími umsókna um vernd lengdist umtalsvert milli fjórða ársfjórðungs 2016 og fyrsta ársfjórðungs 2017. Mest lengdist málsmeðferðartími umsókna sem afgreiddar voru í efnismeðferð, bæði hefðbundinni efnismeðferð og forgangsmeðferð.

Íbúar Mósúl sem verið er að flytja í flóttamannabúðir.
Íbúar Mósúl sem verið er að flytja í flóttamannabúðir. AFP

Meðalmálsmeðferðartími allra afgreiddra umsókna um vernd á fyrsta ársfjórðungi 2017 var 122 dagar (194 mál). Að meðaltali tók 193 daga að afgreiða umsókn um vernd í hefðbundinni efnismeðferð (57 mál), 98 daga í forgangsmeðferð (75 mál) og 86 daga á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar (62 mál).

„Lenging afgreiðslutíma forgangsmeðferðar skýrist fyrst og fremst af hinum mikla fjölda umsókna um vernd sem barst á síðustu fjórum mánuðum ársins 2016. 748 einstaklingar sóttu þá um vernd hér á landi en af þeim komu 548 frá Albaníu og Makedóníu. Umsóknir þeirra voru í langflestum tilvikum teknar til afgreiðslu á grundvelli forgangsmeðferðar og hafa þau mál nú öll verið leidd til lykta hjá Útlendingastofnun. 75 forgangsmál voru afgreidd á fyrsta ársfjórðungi. Sú tala segir þó ekki alla söguna því stór hluti þeirra 150 umsókna um vernd sem dregnar voru til baka á sama tímabili var í vinnslu hjá forgangsteyminu og dreginn til baka á lokametrum málsmeðferðarinnar, þ.e. skömmu fyrir birtingu ákvörðunar.

Tilfærsla starfsfólks, vegna mikils málafjölda hjá forgangsteymi, hafði þær afleiðingar að afgreiðslutími hefðbundinnar efnismeðferðar og málsmeðferðar á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar lengdist einnig. Innleiðing nýrra útlendingalaga, sem tóku gildi um áramót, og útfærsla verklags varðandi brottvísanir og endurkomubönn urðu jafnframt til þess að lengja afgreiðslutíma umsókna um vernd.

Töluvert hraðar hefur gengið að afgreiða þær umsóknir í forgangsmeðferð sem borist hafa á þessu ári eða 38 daga að meðaltali. Útlendingastofnun væntir þess að meðalmálsferðartíminn verði töluvert styttri á öðrum ársfjórðungi,“ segir á vef Útlendingastofnunar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert