Allt að 14 stiga hiti í dag

Milt loft er yfir landinu og því fylgir skýjað veður og súldarvottur. Á Suðausturlandi verður bjartviðri og þar verður hlýjast í dag eða allt að 14 stiga hiti, segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

„Morgundagurinn heilsar með sunnan strekkingi og rigningu, en með björtu og hlýju veðri á Norður- og Austurlandi. Rigningin kemur úr kuldaskilum og handan þeirra kólnar skarpt og lægir sem þýðir að uppúr hádegi eru líkur á slyddu eða snjókomu um tíma vestantil á landinu,“ segir á vef Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næsta sólarhring:

Suðvestan og vestan 5-15 m/s, hvassast norðan til á landinu. Skýjað og dálítil súld eða rigning, en bjartviðri á Suðausturlandi og Austfjörðum. Hægari vindur og þurrt að kalla seinnipartinn. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast um suðaustanvert landið.
Sunnan 10-15 og rigning á morgun, en hægari og bjart á Norður- og Austurlandi. Lægir vestantil á landinu eftir hádegi, kólnar þar og líkur á slyddu eða snjókomu um tíma.

Á fimmtudag:
Sunnan 8-15 m/s og rigning, en hægari og bjart á Norður- og Austurlandi. Hiti 6 til 13 stig, hlýjast norðaustanlands. Lægir vestantil á landinu eftir hádegi, kólnar þar og líkur á slyddu eða snjókomu um tíma.

Á föstudag:
Suðaustan 13-18 m/s. Þurrt að kalla norðanlands, annars rigning eða slydda, en snjókoma til fjalla. Hægari vindur á Suður- og Vesturlandi um kvöldið. Hiti 2 til 10 stig, hlýjast fyrir norðan.

Á laugardag:
Suðaustan 5-13 m/s og skúrir eða slydduél, en rigning austanlands og þurrt um landið norðvestanvert. Hiti breytist lítið.

Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Ákveðin austlæg átt. Væta með köflum sunnan- og austanlands, en yfirleitt þurrt í öðrum landshlutum. Hiti 4 til 12 stig, hlýjast um landið vestanvert.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert