Fjármunum ekki forgangsraðað til þeirra sem sárast þurfa

Ellen Calmon, formaður ÖBÍ.
Ellen Calmon, formaður ÖBÍ. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjármunum ríkisins er ekki forgangsraðað til þeirra sem sárast þurfa á þeim að halda. Hægt er að lesa úr fjármálaáætlun fyrir 2018-2022 að fjárhagsstaða ríkissjóðs sé mjög góð en að sama skapi er ekki hægt að sjá að nýta eigi hina góðu fjárhagsstöðu til að bæta stöðu fólks sem býr við kröpp kjör eða fátækt svo sem vegna fötlunar, sjúkdóma, slysa eða atvinnuleysis.

Þetta kemur fram í umsögn Öryrkjabandalags Íslands vvegna þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun fyrir 2018-2022. Umsögnina má finna í viðhengi með þessum pósti.

Í fréttatilkynningu er bent á að ÖBÍ fékk málið ekki til umsagnar þrátt fyrir að bandalagið sé heildarsamtök fatlaðs fólks, langveikra og aðstandenda þeirra. Aðildarfélögin eru 41 talsins og telja 29 þúsund félagsmenn eða 9% þjóðarinnar.

Þá segir jafnframt að fátækt sé ekki náttúrulögmál og henni eigi að vera hægt að útrýma ef sannur áhugi og vilji ráðamanna væri fyrir hendi.

Í umsögn sinni gerir ÖBÍ tillögur til breytinga á þingsályktunartillögunni, þar á meðal að 100% tekjuskerðingar verði afnumdar í tveimur áföngum og að lögfestar verði reglur um að allir, sem eiga rétt á sérstakri framfærsluuppbót, fái hana greidda án tillits til fyrri búsetu erlendis.

Þá er lagt til að desemberuppbót til lífeyrisþega verði hækkuð þannig að óskert desemberuppbót til lífeyrisþega (heimilisuppbótar) verði að minnsta kosti ekki lægri en desemberuppbót atvinnuleitenda og að auknum fjármunum veðri varið til menntunar fatlaðra barna og ungmenna ásamt börnum og ungmennum með sérþarfir.

Einnig leggur ÖBÍ til að kostnaðarhlutdeild ríkissjóðs vegna greiðsluþátttöku í heilbrigðiskerfinu verði 100% frá 1. janúar 2018 og að virðisaukaskattur af lyfjum fyrir örorkulífeyrisþega, fatlað fólk og aldraða verði afnuminn.

„ÖBÍ áskilur sér rétt til að senda inn aðra og ítarlegri umsögn um málið síðar. Þá eru forsvarsmenn Öryrkjabandalags Íslands ávallt reiðubúnir til samstarfs um betra og aðgengilegra samfélag fyrir alla,“ segir í fréttatilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert