Sóttu vélarvana gúmbát

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Björgunarskip frá Reykjavík fór og sótti gúmbát sem varð vélarvana um hálfa sjómílu út af Gróttu í dag. Tilkynning barst um vandræði bátsins á fimmta tímanum.

Samkvæmt upplýsingum frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg var einn maður í bátnum. Greiðlega gekk að koma manninum til bjargar og koma honum og bátum í land.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert