Fleiri dagar vegna dræmrar veiði

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að fjölga veiðdögum á grásleppuvertíð úr 36 í 46 samkvæmt tilkynningu frá atvinnuvegaráðuneytinu. Verður það gert með reglugerð sem tekur gildi miðvikudaginn 3. maí.

„Líkt og fram hefur komið hefur heildarveiði á grásleppuvertíð verið dræm. Á því eru nokkrar skýringar, m.a. að fjöldi virkra leyfa er í lágmarki miðað við undanfarin ár en skv. Fiskistofu hafa aðeins 157 aðilar sótt um leyfi það sem af er þessari vertíð, og aflabrögð verið með lakara móti. Hafrannsóknastofnun lagði til 6.355 tonna heildarveiði fyrir vertíðina og er sú ráðgjöf óbreytt,“ segir enn fremur.

Þá segir að ráðuneytinu sé ljóst að ákvörðunin komi seint en lengi hafi verið vonað að afli tæki að glæðast. „Fyrir liggur að þeir sem hófu fyrstir veiðar eru búnir að taka upp netin og strandveiðar að hefjast. Eftir sem áður er mikið í húfi fyrir þá sem stunda grásleppuveiðar áfram og þá sem hafa atvinnu af þeim í landi, m.a. við vinnslu afurða að allt verði reynt til að ná því magni sem Hafrannsóknastofnun hefur lagt til.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert