Hugur Reykvíkinga er hjá fórnarlömbum, fjölskyldum þeirra og vinum og öllu samfélaginu í Manchester að því er segir í samúðarskeyti sem Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur sent Andy Burnham, borgarstjóra í Manchester, í tilefni af árásinni í borginni í gærkvöldi þar sem 22 létust og 59 slösuðust.
„Fyrir hönd íbúa Reykjavíkurborgar vil ég votta þér mína dýpstu samúð vegna þeirra voveiflegu atburða sem áttu sér stað í gærkvöldi,“ skrifar Dagur.
„Við verðum að standa saman fyrir frjálsum, lýðræðislegum og umburðarlyndum samfélögum, þar sem allir geta blómstrað á eigin forsendum – og gegn óskiljanlegum athöfnum haturs og ofbeldis eins og við urðum nú vitni að í Manchester.“
Hryðjuverkasamtökin Ríki íslams lýstu yfir ábyrgð á árásinni í morgun. Lögreglan í Manchester hefur greint frá því að árásarmaðurinn hafi látist þegar hann virkjaði sprengjuna sem hann var með á sér á tónleikunum í Manchester í gærkvöldi.