Hjólreiðamaðurinn er látinn

mbl.is/Sverrir

Hjólreiðamaðurinn, sem fannst meðvitundarlaus á Nesjavallavegi eftir miðjan dag í gær, hefur verið úrskurðaður látinn á sjúkrahúsi í Reykjavík. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Maðurinn var ítalskur ferðamaður á þrítugsaldri.

„Maðurinn virðist hafa fallið af reiðhjóli sínu á leið sinni um Nesjavallaveg vestan Dyrafjalla og hlotið við það alvarlega höfuðáverka. Lögregla óskar þess að þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir mannsins um Nesjavallaveg í gær hafi samband í síma 444-2000 eða í tölvupósti á netfanginu sudurland@logreglan.is,“ segir enn fremur.

Þá kemur fram að ekki sé  unnt að gefa upplýsingar um nafn hans að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert