Ofninn gangsettur að nýju

Kísilmálmsmiðja United Silicon.
Kísilmálmsmiðja United Silicon. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Ljósbogaofn kís­il­málm­verk­smiðju United Silicon í Helgu­vík var gangsettur að nýju í gærkvöldi eftir að hafa stöðvast á þriðjudagskvöld vegna þess að eitt af rafskautum ofnsins brotnaði. 

Um leið og ofninn nær fullum hita að nýju, á að draga úr lykt frá verksmiðjunni að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá United Silicon. „Umhverfisstofnun og bæjaryfirvöldum er haldið upplýstum um allt sem gerist í rekstri ljósbogaofnsins meðan á þessari uppkeyrslu stendur.

Endurræsing verksmiðjunnar hófst sl. sunnudag en líkt og þá var greint frá mun taka tíma að ná jöfnum og stöðugum rekstri eftir svo langa rekstrarstöðvun. Endurræsingin hefur í stórum dráttum gengið eftir áætlun.

Eftir að ofninn stöðvaðist á þriðjudag tók viðgerð nokkurn tíma og af þeim sökum barst lykt frá verksmiðjunni meðan á ofnstoppi stóð. 

Norska loftrannsóknarstofnunin NILU sinnir nú mælingum á loftgæðum inni í verksmiðjunni og í nágrenni hennar, þar á meðal á heimili einu í Reykjanesbæ, þar sem lyktar hefur orðið vart. Markmið mælinga er að fá óyggjandi vissu um hvaða efni geti borist frá verksmiðjunni við ólíkar aðstæður og í hvaða magni, svo unnt sé að grípa til viðeigandi aðgerða í framhaldinu.

United Silicon vinnur nú eftir úrbótaáætlun norska ráðgjafarfyrirtæksisns Multikonsult sem tók út verksmiðjuna í kjölfar stöðvunarinnar 18. apríl sl. og sérfræðingar norska fyrirtækisins starfa enn með United Silicon og munu vera til staðar í Helguvík, þar til starfsemin er komin í fullan gang.

„Úttekt á öllum rekstrarþáttum fer fram með ofninn í rekstri en gert er ráð fyrir að það geti tekið allt að þremur vikum að ná upp fullum afköstum og stöðugum rekstri ofnsins.  Á þeim tíma gæti lykt borist frá starfseminni þó að reynt sé eftir fremsta megni að takmarka hana eins og kostur er,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert