8 ökumenn í vímu

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði átta ökumenn í gærkvöldi og nótt sem annaðhvort reyndust undir áhrifum fíkniefna eða áfengis. Einn þeirra var einnig sviptur ökuréttindum.

Af ökumönnunum átta voru fimm undir áhrifum fíkniefna en þrír undir áhrifum áfengis.

Lögreglan hafði einnig afskipti af manni sem er grunaður um vörslu fíkniefna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert