Andlát: Dóra Guðjónsdóttir Nordal

Dóra Guðjónsdóttir Nordal, píanóleikari og húsfreyja, lést í gær á nítugasta aldursári.

Dóra fæddist í Reykjavík 28. mars 1928, dóttir hjónanna Mörtu Magnúsdóttur húsfreyju og Guðjóns Ó. Guðjónssonar, prentara og bókaútgefanda.

Hún stundaði nám í píanóleik við Tónlistarskólann í Reykjavík og var aðalkennari hennar Árni Kristjánsson. Að loknu burtfararprófi árið 1948 hélt hún til London til framhaldsnáms hjá Kathleen Long á árunum 1949 til 1953.

Í London kynntist Dóra Jóhannesi Nordal, síðar seðlabankastjóra, sem þar var við hagfræðinám. Þau giftu sig í Kaupmannahöfn 19. desember 1953.

Þau eignuðust sex börn. Þau eru Bera listfræðingur, f. 1954, Sigurður viðskiptafræðingur, f. 1956, Guðrún prófessor, f. 1960, Salvör heimspekingur, f. 1962, Ólöf lögfræðingur, f. 1966, d. 2017, og Marta leikari, f. 1970.

Dóra var mikil laxveiðikona. Hún var ein af fyrstu konunum til að leggja fyrir sig stangveiði á flugu. Stundaði hún veiðar um áratuga skeið, einkum við Svarthöfða í Borgarfirði og Laxá í Aðaldal.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert