Barn í sjálfheldu uppi á skólabyggingu

mbl.is/Hjörtur

Barn á grunnskólaaldri klifraði upp á þak skólabyggingar í Breiðholti síðdegis í dag og var þá komið í sjálfheldu. Vaktstjóri hjá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins segir barnið hafa brugðist hárrétt við, ekki reynt að klifra niður heldur kallað á hjálp.

Slökkviliðsmenn komu barninu til bjargar og komu því niður af þaki skólans. Það sakaði ekki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert