Einstök tenging við náttúruna

Um 100 býflugnabændur hér á landi eru með á þriðja …
Um 100 býflugnabændur hér á landi eru með á þriðja hundrað hunangsbýflugnabú. Ljósmynd/Hersteinn Pálsson

„Ég hef haft þessa ástríðu frá því ég var unglingur. Maður fylgist með gróðri og veðurfari og fær einstaka tengingu við náttúruna,“ segir Torbjörn Andersen, læknir og býflugnabóndi.

Harðsnúinn hópur áhugafólks undir forystu Egils R. Sigurgeirssonar, læknis og formanns Býræktarfélags Íslands, hefur unnið að því að innleiða þessa nýju búgrein hér á landi. Búin eru flutt inn frá Álandseyjum og haldin námskeið fyrir nýja ræktendur. Á ýmsu hefur gengið en menn hafa verið að læra að halda lífinu í búunum yfir veturinn.

Um 100 býflugnabændur eru nú hér á landi með alls á þriðja hundrað bú. Þeim mun fjölga í ár því áhuginn fer vaxandi, að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert