Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu hafa verið kallaðar út til leitar að hlaupara, á eða við Helgafell ofan Hafnarfjarðar.
Maðurinn varð viðskila við annan hlaupafélaga sinn á fjallinu og ekki hefur náðst samband við hann eftir það. Í fréttatilkynningu frá Landsbjörg segir að veður á svæðinu sé hálfleiðinlegt, rok og rigning, og maðurinn klæddur fyrir hlaup en ekki langa útiveru.
Eru tveir hópar björgunarmanna lagðir af stað á fjallið til leitar og fleiri eru að gera sig klára.