Úthlutar 90 milljónum til 139 verkefna

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra flytur ávarp.
Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra flytur ávarp. Ljósmynd/Velferðarráðuneytið

Óttarr Proppé heilbrigðisráðherra úthlutaði í dag rúmlega 90 milljónum króna í styrki úr lýðheilsusjóði til 139 verkefna og rannsókna. Frá þessu greinir í tilkynningu frá velferðarráðuneytinu.

Við auglýsingu eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum í ár var meðal annars lögð áhersla á aðgerðir til eflingar geðheilsu, forvarnir gegn sjálfsvígum, áfengis-, tóbaks- og vímuvarnir og verkefni sem beinast að minnihlutahópum til að stuðla að jöfnuði til heilsu. 

Ráðherra úthlutaði styrkjunum að fegnum tillögum stjórnar Lýðheilsusjóðs sem mat umsóknir út frá því hvernig þær féllu að hlutverki sjóðsins. Athöfnin fór fram í grasagarðinum í Laugardal og hófst með ávarpi heilbrigðisráðherra. „Verkefni ykkar eru mikilvægur liður í því að efla forvarnir og heilsueflingu hér á landi og þar með að auka vellíðan og lífsgæði einstaklinga og fjölmargra hópa,“ sagði ráðherra meðal annars við athöfnina.

Kynnti app sem eflir hamingju

Kristín Heimisdóttir, formaður lýðheilsusjóðs, flutti einnig ávarp og þá var kynnt verkefni Helgu Arnardóttur, sem áður hefur hlotið styrk úr lýðheilsusjóði til verkefnisins HappApp, en það er snjallforrit sem byggir á vísindum jákvæðrar sálfræði en í forritinu eru æfingar sem efla hamingju og andlega vellíðan notenda.

Meðal verkefna sem hljóta styrk úr lýðheilsusjóði í ár eru verkefni Núvitundarsetursins um innleiðingu núvitundar í sex grunnskóla að breskri fyrirmynd, verkefni Ársæls Arnarsonar um rannsókn á heilsu og lífskjörum skólabarna á Íslandi í alþjóðlegum samanburði, verkefni Akraneskaupstaðar um ráðgjöf og aðgerðir til heilsueflingar fólks 60 ára og eldra og samstarfsverkefni Kynís, Ástráðs, FKB og heilsueflandi framhaldsskóla um smokkasjálfsala í framhaldsskólum til að sporna við óvenju hárri tíðni klamydíu hér á landi.

Hér má sjá yfirlit stryrkja úr lýðheilsusjóði árið 2017.

Heilbrigðisráðherra veitti í dag styrki úr lýðheilsusjóði.
Heilbrigðisráðherra veitti í dag styrki úr lýðheilsusjóði. Ljósmynd/Velferðarráðuneytið
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert