Mikil tilþrif í stígvélakastinu

Mismunandi tækni var notuð af keppendum í stígvélakasti.
Mismunandi tækni var notuð af keppendum í stígvélakasti.

Landsmóti UMFÍ 50+ var slitið í Hveragerði um miðjan dag í dag að lokinni keppni í hinu landsfræga stígvélakasti. Mótið hefur staðið yfir alla Jónsmessuhelgina í Hveragerði og tæplega 600 manns keppt í fjölda greina af ýmsu tagi. Ætla má að rúmlega 1.000 utanbæjarmenn hafi verði í bænum í tengslum við mótið, sem fór afskaplega vel fram. 

Sunnudagurinn byrjaði með keppni í þríþraut og þrekkeppni, badminton og fuglagreiningu, að ótöldu stígvélakastinu.

Í stígvélakastinu veitti Kjörís sérstök verðlaun fyrir skemmtileg tilþrif. Ein þeirra hlaut amma sem hlaut mikinn stuðning frá barnabörnum sínum í áhorfendahópnum sem kölluðu hátt: „Áfram amma, amma…!“

Landsmót UMFÍ 50+ hefur verið haldið árlega síðan árið 2011. Það er fyrir fólk sem verður fimmtugt á árinu og eldri þátttakendur. Mótið er blanda af íþróttakeppni og annarri keppni, hreyfingu og því að fá fólk á besta aldri til að hafa gaman saman.

Veitt voru sérstök verðlaun fyrir skemmtileg tilþrif í stígvélakastinu.
Veitt voru sérstök verðlaun fyrir skemmtileg tilþrif í stígvélakastinu.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert