Þrír ökumenn í vímu

Þrír ökumenn voru stöðvaðir í gærkvöldi og í nótt af lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Mennirnir eru grunaðir um að hafa ekið undir áhrifum áfengis og eða fíkniefna.

Samkvæmt dagbók lögreglu voru þeir færðir til afgreiðslu málsins á næstu lögreglustöð og látnir lausir að þeirri afgreiðslu lokinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert