Hélt partý án leyfis húsráðenda

Enginn þeirra sex sem voru í vímu undir stýri voru …
Enginn þeirra sex sem voru í vímu undir stýri voru undir áhrifum áfengis heldur voru þeir allir undir áhrifum fíkniefna. mbl.is/Eggert

Lögreglan handtók ungan mann í annarlegu ástandi í Grafarvogi í gærkvöldi en hann hafði verið með partý og læti á heimili í hverfinu. Maðurinn býr ekki í íbúðinni og hafði ekki leyfi frá húsráðanda til þess að halda partý. Maðurinn gistir fangageymslu lögreglunnar.

Sex ökumenn voru stöðvaðir í gærkvöldi og í nótt á höfuðborgarsvæðinu grunaðir um að vera undir áhrifum fíkniefna. Einn þeirra reyndist einnig vera með fíkniefni á sér og annar var á óskráðri bifreið. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert