Álagningarseðlarnir komnir á skattur.is

Álagningarseðlar einstaklinga árið 2017 eru nú aðgengilegir á þjónustvef Ríkisskattstjóra, skattur.is. Álagningarskrár verða lagðar fram á föstudaginn, 30. júní, og verða aðgengilegar í 14 daga.

Þeir sem óskuðu eftir álagningarseðli á pappír fá hann sendan í pósti eftir 29. júní. Inneignir verða greiddar út föstudaginn 30. júní. Kærufrestur verður til fimmtudagsins 31. ágúst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert