Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir manni sem grunaður er um fjölmörg svik á leigumarkaði. Maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá því 28. mars en honum er gert að sæta varðhaldi til 18. júlí.
Maðurinn auglýsti húsnæði til leigu á Bland.is. Hann var hins vegar ekki réttmætur eigandi íbúðanna. Með þessum hætti hafði hann milljónir af grunlausum leigjendum. Bæði er um brot að ræða síðan snemma á þessu ári sem og frá árinu 2015 en þau brot voru framin þegar maðurinn var á reynslulausn, samkvæmt gögnum sem lögð voru fram í héraðsdómi.
Það er mat lögreglustjóra að yfirgnæfandi líkur séu á því að maðurinn muni halda áfram brotastarfsemi fari hann frjáls ferða sinna en nauðsynlegt sé að ljúka þeim málum sem séu til meðferðar hjá lögreglu og dómstólum sem fyrst. Gefin var út ákæra á hendur manninum 20. júní.