Fundaði með Paul Ryan

Unnur Brá ásamt þingforsetunum og forseta fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, sem er …
Unnur Brá ásamt þingforsetunum og forseta fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, sem er fjórði frá hægri. Ljósmynd/Tomas Enqvist

Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis, fundaði í dag með Paul Ryan, forseta fulltrúardeildar Bandaríkjaþings, ásamt þingforsetum Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Lagði Unnur Brá áherslu á mikilvægi góðs samstarfs Bandaríkjanna við bandamenn í Evrópu, m.a. þingmannasamskipti.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu Alþingis en þingforsetar þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja eru í vinnuheimsókn í Bandaríkjunum 27.-28. júní.

„Lýsti [Unnur Brá] áhyggjum af minnkandi trausti almennings í Evrópu og víðar um heim á Bandaríkjunum, eins og nýleg alþjóðleg könnun sýnir. Sagði hún mikilvægt að Bandaríkin gegndu áfram forystuhlutverki sínu af ábyrgð og festu. Þá ræddu þingforsetarnir málefni norðurslóða og samvinnu á þeim vettvangi í ljósi aukins áhuga á svæðinu, en í síðustu viku hélt Hringborð norðurslóða undir forystu Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands, fjölmenna Arctic Circle Forum ráðstefnu í Washington,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert