Ánafnaði barnaspítalanum verðlaunaféð

Hér veitir Jóhanna Guðbjörnsdóttir, aðstoðarmaður framkvæmdastjóra kvenna- og barnasviðs Landspítalans, …
Hér veitir Jóhanna Guðbjörnsdóttir, aðstoðarmaður framkvæmdastjóra kvenna- og barnasviðs Landspítalans, framlaginu viðtöku ásamt Sigurbjörgu Guttormsdóttur, leikskólakennara á barnaspítalanum, og Hirti Frey Vigfússyni, markaðsstjóra Securitas. Ljósmynd/Securitas

Sigurvegari góðgerðarhöggs á árlegu fyrirtækjagolfmóti Securitas, Örn Sveinsson, ánafnaði barnaspítala Hringsins upphæðinni, 80.000 krónur. Samkvæmt fréttatilkynningu Securitas vann Örn, sem er frá Saga Film, einnig góðgerðarhöggið á síðasta ári og lét upphæðina sem þá safnaðist, 70.000 krónur, einnig renna til barnaspítalans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert