Skammhlaup í rafstreng í Straumsvík

Mikill viðbúnaður var vegna atviksins í álverinu, en svo reyndist …
Mikill viðbúnaður var vegna atviksins í álverinu, en svo reyndist engin hætta hafa verið á ferðum. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Allt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út í álverið í Straumsvík á þriðja tímanum í dag eftir að skammhlaup varð í rafstreng sem liggur frá tölvuhúsi í skrifstofuhús. Þegar fyrsti bíll mætti á vettvang var stærsta hluta slökkviliðs snúið við en tveir bílar fóru á vettvang.

Bjarni Már Gylfason upplýsingafulltrúi Rio Tinto í Straumsvík segir að engin hætta hafi verið á ferðum og enginn eldur hafi kviknað. „Slökkviliðið var kallað til í öryggisskyni, þetta var fyrst og fremst öryggisráðstöfun,“ segir hann en reykur kom vegna skammhlaupsins.

Fréttin hefur verið uppfærð

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert