Kona slasaðist á Bláhnjúk

Björgunarsveitarmenn í Landmannalaugum eru að aðstoða konuna og hafa óskað …
Björgunarsveitarmenn í Landmannalaugum eru að aðstoða konuna og hafa óskað eftir liðsauka. mbl.is/Brynjar Gauti

Björgunarsveitarmenn á hálendisvakt í Landsmannalaugum eru að aðstoða konu sem hrasaði við göngu við Bláhnjúk. Hún getur ekki gengið að sjálfsdáðum. Vettvangurinn er í þónokkrum bratta og því þarf að aðstoða hana að sjúkrabíl.

Samkvæmt upplýsingum frá Landsbjörg var um klukkan hálf eitt í dag óskað eftir frekari aðstoð frá sveitum úr byggð og einnig er björgunarsveitarfólk sem var á svæðinu á leiðinni í verkefnið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert