Pottur brann yfir í Garðabæ

Mynd úr safni.
Mynd úr safni. mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Pottur brann yfir í Boðahlein í Garðabæ í dag. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði var nokkur viðbúnaður þegar fyrst var tilkynnt um atvikið en þegar fyrsti dælubíll mætti á vettvang var öðrum bílum snúið við.

Slökkviliðið er búið að reykræsta og virðast engar skemmdir hafa orðið vegna brunans en hugsanlega er potturinn ónýtur samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert