Sagður hafa fallið fimm metra

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Maður var fluttur á slysadeild Landspítalans í nótt eftir fall við götuna Marteinslaug í Grafarholti í Reykjavík. Lögreglunni barst tilkynning um málið rétt fyrir klukkan 2 í nótt og samkvæmt henni hafði maðurinn fallið fimm metra.

Hann hlaut áverka á höfði og var eins og fyrr segir fluttur á slysadeild til aðhlynningar. Ekki liggja fyrir upplýsingar um hvaðan maðurinn féll og hversu hátt fallið reyndist hafa verið.

Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert