Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í mörg horn að líta í nótt að venju.
<span> </span> <span>Rúmlega 3 í nótt var tilkynnt um slagsmál í miðbænum. Einn maður hafði verið skallaður en hann leitaði sjálfur aðhlynningar á slysadeild Landspítalans. Gerandinn var handtekinn og er vistaður í fangaklefa.</span> <span> </span> <span>Þá stöðvaði lögreglan fjóra menn vegna gruns um ölvun við akstur á klukkustund milli klukkan 3.40 og 4.40 í nótt. allir reyndust bílstjórarnir vera ölvaðir. Einn hafði þegar verið sviptur ökuréttindum og annar var ekki með gild réttindi til að aka bíl.</span>