Annar drengjanna enn á spítala

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Tveir 16 ára dreng­ir voru flutt­ir á bráðadeild­ina í Foss­vogi eft­ir fjór­hjóla­slys á gatna­mótum Haga­lækj­ar og Laxa­lækj­ar á Sel­fossi í gærkvöldi. Annar þeirra hefur verið útskrifaður en hinn liggur enn á spítala og er alvarlega slasaður. 

Lögreglunni á Selfossi var tilkynnt um slysið um klukkan hálfellefu í gærkvöldi. Fjórhjólið hafði lent utan vegar og oltið á vegi sunnan við Selfoss. Rannsókn stendur enn yfir á tildrögum slyssins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert