Alvarlegt bílslys á Reyðarfirði

Ökumaður var sendur með sjúkraflugi til Reykjavíkur.
Ökumaður var sendur með sjúkraflugi til Reykjavíkur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Alvarlegt umferðarslys varð á Suðurfjarðarvegi skammt frá bænum Sléttu í botni Reyðarfjarðar snemma á sunnudagsmorgun. Ungur ökumaður var einn í bílnum sem hafnaði utan vegar að sögn lögreglunnar á Eskifirði.

Ekki er vitað að svo stöddu hvað olli slysinu en tildrög þess eru til rannsóknar hjá lögreglunni. Ökumaðurinn var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem hann hefur undirgengist aðgerð. Ekki er vitað frekar um líðan mannsins að svo stöddu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert