Eldur logaði í stút gaskúts

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að húsi í Kópavoginum um áttaleytið í kvöld, eftir að eldur kviknaði á stút gaskúts undir gasgrilli þar sem verið var að grilla.

Húsráðendur brugðust hárrétt við að með því kalla á slökkviliðið, sem kom á vettvang og slökkti eldinn og skrúfaði svo fyrir gasið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert