Fékk áfall undir stýri og ók út af

mbl.is

Umferðaróhapp varð á Fjarðarheiði á Austfjörðum í dag þegar eldri maður keyrði útaf veginum. Vegfarendur sem komu að manninum látnum hófu strax endurlífgunartilraunir og hringdu á lögreglu.

Þegar viðbragðsaðilar komu á svæðið var endurlífgunartilraunum haldið áfram án árangurs.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Egilsstöðum er talið að maðurinn hafi fengið hjartaáfall undir stýri og misst stjórn á bílnum, sem hafnaði við það utan vegar í mýrlendinu. Maðurinn var einn í bílnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert