Fótbrotnaði í mótorkrossbraut

Maður slasaðist á mótorkrosshjóli í Bolaöldu rétt fyrir átta í kvöld. Að sögn lögreglunnar á Selfossi var maðurinn á ferð á mótorkrossbraut sem er á svæðinu þegar hann datt og fótbrotnaði.

Lögregla og sjúkrabíll komu á vettvang og var maðurinn fluttur á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar, en maðurin var með allan tilskilinn öryggisbúnað að sögn lögreglu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert