Harður árekstur á Grensásvegi

Töluvert brak er á gatnamótunum þar sem áreksturinn varð nú …
Töluvert brak er á gatnamótunum þar sem áreksturinn varð nú á tólfta tímanum. mbl.is/Kristján Johannessen

Harður árekstur varð nú á tólfta tímanum á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar þar sem bíll virðist hafa ekið á strætisvagn.

Að sögn slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu er sjúkrabíll nú á leið á vettvang, en ekki er talið að alvarleg slys hafi orðið á fólki. 

Töluvert brak er á gatnamótunum, þar sem bíllinn stendur kyrr á þeim miðjum, en ekki hafa þó orðið tafir á umferð vegna árekstursins. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert