Ekki skilja hundana eftir úti í bíl

Hundaeigendur mega ekki gleyma hundunum í bílnum í sólinni.
Hundaeigendur mega ekki gleyma hundunum í bílnum í sólinni. mbl.is/Kristinn Magnússon

Hundaeigendum er bent á að skilja hunda ekki eftir í bílum þegar heitt er í veðri. Hitastig í bílum sem sólin skín á getur mjög fljótt farið upp fyrir 25°C, jafnvel þótt gluggar séu opnir. Hundar þola hita afar illa og geta fengið hitaslag eða drepist á skömmum tíma. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun. 

Samkvæmt 21. grein reglugerðar um aðbúnað gæludýra má ekki skilja hund eftir í eða á flutningstæki án eftirlits ef hitastig getur farið yfir +25°C eða undir -5°C og aldrei má skilja hund einan eftir í flutningstæki ef hann sýnir merki um vanlíðan, segir jafnframt í tilkynningu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert