Sólarstundir nýttar í Laugardalnum

Veðrið hefur leikið við íbúa höfuðborgarsvæðisins í dag þar sem hiti mældist 20 gráður líkt og víða um land. Í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum var að vonum fjölmenni sem nýtti sér góða veðrið til að bregða á leik.

mbl.is var á staðnum og kíkti á stemninguna. Í kortunum er fínt veður á suðvesturhorni landsins og á Vesturlandi en annars staðar er von á úrkomu.

Veður á mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert