Tveir með annan vinning í Víkingalottó

Víkingalottó.
Víkingalottó.

Enginn var með allar tölur réttar í Vík­ingalottó­inu í kvöld, en fyrsti vinningur var tæpir 1,3 milljarðar króna. Tveir hlutu hins vegar annan vinning og fær hvor þeirra 15 milljónir króna í sinn hlut. Var annar miðinn keyptur á Íslandi en hinn í Noregi.

Einn hlaut þriðja vinning, tæpar tvær milljónir króna, og var sá miði keyptur í áskrift.

Enginn var með allar réttar tölur í réttri röð í Jókernum. Þrír reyndust hins vegar vera með fjórar réttar tölur í réttri röð og fengu þeir 100 þúsund krónur hver í sinn hlut.

Þeir miðar voru keyptir í Vídeómarkaðinum Hamraborg, N1 Ártúnshöfða og hjá lottó.is

Vinn­ingstöl­ur kvölds­ins: 11-12-30-37-40-47.

Víkingatalan: 1

Jóker­töl­urn­ar: 3-0-0-0-8

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert