Valitor varar við kortasvikum

AFP

Valitor varar við svikatölvupóstum til korthafa, þar sem þeir eru beðnir um að opna hlekk í póstinum og gefa upp kortaupplýsingar, auk Verified by Visa-númers sem korthafar fá sent í sms-skilaboðum.

„Tölvupóstar sem um ræðir núna eru sendir út með vörumerkjum þekktra fyrirtækja, jafnt innlendum sem erlendum, og því fyllsta ástæða til að vera á varðbergi. Oft er verið að tilkynna í þessum póstum um að korthafar eigi von á endurgreiðslum eða um einhverskonar þjónusturöskun sem kallar á umsvifalausa aðgerð,“ segir í tilkynningu frá Valitor.

Korthafar eru beðnir um að hafa eftirfarandi í huga:

  • Korthafar eiga ekki undir neinum kringumstæðum að gefa upp Verified by VISA öryggisnúmer sem sent er í GSM síma þegar boð um endurgreiðslu berast. Enda er ekki þörf á því númeri þegar gerð er endurgreiðsla heldur á þetta númer aðeins við þegar korthafar eru sjálfir að versla á netinu.
  • Korthafar eiga ekki undir neinum kringumstæðum að gefa upp þriggja stafa öryggisnúmer sem er aftan á kortunum þegar um endurgreiðslur er að ræða. Korthafar sem fá boð um inneign hjá söluaðila ættu í öllum tilfellum að hafa samband við viðkomandi aðila til þess að fá upplýsingar um inneign og passa að gefa engar upplýsingar upp fyrr en staðfesting liggur fyrir.
  • Varast pósta á lélegri íslensku. Erlend fyrirtæki senda venjulega allt á ensku.
  • Ekki opna hlekki í tölvupóstum sem þú kannast ekki við.
  • Korthafar sem gefa upp allar öryggisupplýsingar í tengslum við kortið til rangra aðila geta átt á hættu  að bera sjálfir hugsanlegt tjón.

Sjá tilkynninguna á vef Valitor.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert