Bandarísku skipverjarnir komnir í land

Hafrannsóknarskipið hefur skilað bandarísku skipverjunum í land í Grindavík.
Hafrannsóknarskipið hefur skilað bandarísku skipverjunum í land í Grindavík. Eggert Jóhannesson

Skipverjarnir þrír á bandarísku skútunni sem lentu í vandræðum suðvestur af Íslandi aðfaranótt miðvikudags eru komnir í land. Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson, sem bjargaði þeim úr sjálfheldu, sigldi með þá til Grindavíkur í morgun.

Þetta staðfesti Ingvi Friðriksson, skipstjóri á Árna Friðrikssyni, í samtali við mbl.is. Þegar rannsóknarskipið kom þeim til hjálpar var skútan rafmagnslaus og með brotið mastur, en hún hafði farið á kaf þegar hún fékk á sig brotsjó. Náði hún að rétta sig við og mennirnir komust allir heilir á húfi frá aðstæðunum.

Eru þeir nú í höndum bandaríska sendiráðsins sem aðstoðar þá við næstu skref. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert