Atvinnuleysi á öðrum ársfjórðungi 3,4%

Atvinnuleysi á öðrum ársfjórðungi þessa árs mældist 3,4%.
Atvinnuleysi á öðrum ársfjórðungi þessa árs mældist 3,4%. mbl.is/Ómar Óskarsson

Atvinnuleysi á öðrum ársfjórðungi þessa árs mældist 3,4% og voru  að jafnaði 202.500 manns á aldrinum 16–74 ára á vinnumarkaði. Af þeim voru 195.600 starfandi og 7.000 án vinnu og í atvinnuleit að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofunnar og mældist  atvinnuþátttaka 84,4%. Var  hlutfall starfandi 81,5% og atvinnuleysi var 3,4%.

Starfandi fólki fjölgaði um 3.500 frá öðrum ársfjórðungi 2016, en hlutfallið af mannfjölda lækkaði um 0,4 prósentustig. Atvinnulausum fækkaði á sama tíma um 200 manns og hlutfall atvinnulausra af vinnuafli lækkaði um 0,2 prósentustig. Atvinnulausar konur voru 3.300 og var atvinnuleysi á meðal kvenna 3,5%. Atvinnulausir karlar voru 3.700 eða 3,4%. Atvinnuleysi var 3,9% á höfuðborgarsvæðinu og 2,6% utan þess.

60% atvinnulausir í tvo mánuði eða skemur

Af þeim sem voru atvinnulausir á öðrum ársfjórðungi 2017 voru að jafnaði 4.200 manns búnir að vera atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur eða 60% atvinnulausra. Á öðrum ársfjórðungi í fyrra höfðu um 3.100 einstaklingar verið atvinnulausir í 2 mánuði eða skemur sem þá voru 42,6% atvinnulausra.

Langtímaatvinnuleysi er nú orðið svipað og það var fyrir 2009, en það jókst til muna á árunum 2009-2012. Þeir sem hafa verið atvinnulausir í 12 mánuði eða lengur eru skilgreindir sem langtímaatvinnulausir.

Á öðrum ársfjórðungi 2017 höfðu um 400 manns verið langtímaatvinnulausir eða 5,5% atvinnulausra samanborið við 800 manns á öðrum ársfjórðungi 2016, sem þá voru 11% atvinnulausra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert