Stefna á langtímasamning við Hugarafl

Hugarafl hefur áður mótmælt niðurskurði í fjárframlögum til samtakanna. Velferðarráðuneytið …
Hugarafl hefur áður mótmælt niðurskurði í fjárframlögum til samtakanna. Velferðarráðuneytið hefur nú lýst yfir vilja til að gera langtímasamning við samtökin. mbl.is/Kristinn Magnússon

Velferðarráðuneytið stefnir að gerð langtímasamnings um aukin framlög til Hugarafls, samtaka notenda geðheilbrigðisþjónustu, til að styrkja starf samtakanna í þágu fólks með geðraskanir. Þetta var niðurstaða fundar sem félags- og jafnréttismálaráðherra og forsvarsmenn Hugarafls áttu í morgun.

Forsvarsmenn Hugarafls höfðu áður gagnrýnt að ekk­ert hefði breyst frá því að styrk­ur heil­brigðisráðuneyt­is­ins til samtakanna var lækkaður fyr­ir árið 2017 og félagsmálaráðherra hefði ekki mætt á þá fundi sem samtökin hefðu verið boðuð á í ráðuneytinu .

Fundinn í dag sátu af hálfu Hugarafls stjórnarmennirnir Auður Axelsdóttir, Sigurborg Sveinsdóttir og Árni Steingrímsson auk Halldórs Más Sæmundssonar aðstandanda. Af hálfu ráðuneytisins sátu, auk félags- og jafnréttismálaráðherra, aðstoðarmenn hans og aðstoðarmenn heilbrigðisráðherra.

Vilja efla virkni og endurhæfingarúrræði samtakanna 

Á fundinum var farið yfir þá vinnu sem unnin hefur verið ráðuneytinu að undanförnu við að greina stöðu Hugarafls og finna leiðir til að styðja við félagið svo það nýtist sem best fólki með geðræn vandamál.

Í fréttatilkynningu frá ráðuneytinu segir að ráðherra hafi lýst vilja sínum til að efla starf Hugarafls, einkum virkni og endurhæfingarúrræði samtakanna. „Hugarafl hefur unnið mikilvægt brautryðjandastarf og um árangurinn af starfi samtakanna verður ekki deilt. Það er mikilvægt að starfsemin nái að þróast áfram og eflast og það erum við sammála um að takist best með vönduðum langtímasamningi um starfsemina þar sem fjallað er um markmið og árangursmælingar“ er haft eftir ráðherra í tilkynningu af fundinum.

Haft er eftir Auði Axelsdóttur að hún sé ánægð með þá stefnu sem málefni Hugarafls hafi tekið. Gerð langtímasamning sé æskileg niðurstaða og hún treysti því einnig að farsæl lausn sem tryggi starfsemi samtakanna á næstu mánuðum náist fljótt.

„Við finnum að það er fullur skilningur á því hvað starfsemi Hugarafls er mikilvæg í íslensku samfélagi og erum afar ánægð með þá viðurkenningu“ er haft eftir Auði. Aðrir fulltrúa Hugarafls á fundinum tóku undir þau orð og kváðust hafa miklar  væntingar til þeirrar vinnu sem framundan sé við gerð langtímasamnings og binda vonir við að niðurstaða náist fljótt til að eyða óvissu.

Hugarafl hefur frá árinu 2011 notið styrkja frá velferðarráðuneytinu sem nema samtals 18,6 milljónum króna, að mestu frá heilbrigðishluta ráðuneytisins. Samtökin fengu einnig 5 milljóna króna styrk frá fjárlaganefnd Alþingis árið 2016. Auk þessa er í gildi samningur milli Hugarafls og Vinnumálastofnunar sem kveður á um þjónustukaup stofnunarinnar af Hugarafli fyrir 10 milljónir króna árlega.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert