Vilja stöðva rekstur kísilverksmiðjunnar

United Silicon í Helguvík.
United Silicon í Helguvík. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Bæjarráð Reykjanesbæjar telur nauðsynlegt að rekstur Kísilmálverksmiðju United Silicon verði stöðvaður hið fyrsta, að minnsta á meðan unnið er að nauðsynlegum úrbótum. Þetta kemur fram í bókun bæjarráðs í dag.

Í bókuninni kemur fram að verksmiðjan hafi verið starfrækt í 9 mánuði án þess að tekist hafi að stöðva mengun frá verksmiðjunni en mengun sem þessi gangi þvert á forsendur starfsleyfis verksmiðjunnar.

Hluti íbúa Reykjanesbæjar hafi ítrekað orðið fyrir verulegum óþægindum og vanlíðan vegna þess og slíkt sé með öllu ólíðandi. 

„Í samtölum við forsvarsmenn fyrirtækisins hefur komið fram að nú liggi fyrir listi yfir atriði sem enn þarfnast lagfæringar og úrbóta sem taka mun vikur eða jafnvel mánuði að hrinda í framkvæmd. Að óbreyttu má því búast við áframhaldandi mengun frá verksmiðjunni með tilheyrandi óþægindum fyrir íbúa,“ segir í bókuninni og því telji bæjarráð nauðsynlegt að reksturinn verði stöðvaður hið fyrsta.

„Í ljósi þessa telur bæjarráð Reykjanesbæjar nauðsynlegt að rekstur verksmiðjunnar verði stöðvaður hið fyrsta, á meðan unnið er að nauðsynlegum úrbótum, svo koma megi í veg fyrir áframhaldandi mengun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert