Tekinn á 162 km/klst hraða

mbl.is/Hjörtur

Fjöldi ökumanna var tekinn fyrir of hraðan akstur í umdæmi lögreglunnar á Norðurlandi vestra síðastliðna viku. Þannig voru 152 ökumenn kærðir fyrir þær sakir en sá sem var mest að flýta sér var mældur á 162 km/klst á leiðinni á milli Sauðárkróks og Varmahlíðar.

Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar og ennfremur að sérstakur umferðardagur hafi verið í gær hjá henni og fjórar lögreglubifreiðar verið við hraðaeftirlit á sama tíma. Voru 45 ökumenn teknir fyrir of hraðan akstur þann dag. Sá sem fór hraðast var á 138 km/klst.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert