Styðja tillögu Varðar

Borgarstjórnarkosningar fara fram næsta vor.
Borgarstjórnarkosningar fara fram næsta vor. mbl.is/Ómar Óskarsson

Formenn sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík lýsa yfir stuðningi við tillögu Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, um blandaða prófkjörsleið fyrir framboðslista flokksins í borginni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

„Formenn sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík:

Friðrik Þór Gunnarsson, formaður Heimdallar

Egill Þór Jónsson, formaður Hóla- og Fellahverfis

Sigurður Helgi Birgisson, formaður Nes- og Melahverfis

Elín Jónsdóttir, formaður í Árbæ

Árni Guðmundsson, formaður í Grafarvogi 

Elín Engilbertsdóttir, formaður  í Langholtshverfi

Júlíus Helgi Eyjólfsson, formaður í Grafarholti

Hafsteinn Númason, formaður á Kjalarnesi

Gylfi Þór Sigurðsson, formaður í Háaleiti

lýsa yfir stuðningi við tillögu Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í Reykjavík, um blandaða prófkjörsleið fyrir framboðslista flokksins í borginni fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Sjálfstæðismenn í Reykjavík geta því allir tekið þátt og haft áhrif á val á næsta leiðtoga flokksins í borginni. Uppstillingarnefnd, kjörin af fulltrúaráði flokksins, velur síðan fulltrúa í önnur sæti á lista. 

Á undanförnum árum hefur þátttaka í prófkjörum farið dvínandi, en til marks um það tóku aðeins 3.400 manns þátt í prófkjöri flokksins í Reykjavík fyrir síðustu alþingiskosningar. Það er versta þátttaka í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík frá upphafi. Til samanburðar eru um 2.000 einstaklingar í fulltrúaráði flokksins, sem kjósa uppstillinganefndina. Opið prófkjör hefur sætt sívaxandi gagnrýni flokksmanna sér í lagi margra sjálfstæðiskvenna er þótti hlutur kvenna rýr í niðurstöðum síðustu prófkjara víða um land til alþingiskosninga. 

Á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir síðustu borgarstjórnarkosningar röðuðu þrír karlmenn sér í þrjú efstu sætin. Sjálfstæðisflokkurinn var brautryðjandi prófkjörsleiðarinnar og hefur haft hana að meginreglu á vali á framboðslista sína en er á sama tíma óhræddur að velja nýjar leiðir við val á lista sem tryggt getur aukna fjölbreytni, styrkt hlut kvenna og sótt fulltrúa úr ólíkum hverfum borgarinnar,“ segir í tilkynningu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert