Vantar enn 100 til starfa á leikskóla borgarinnar

Margar stöður eru enn ómannaðar fyrir veturinn.
Margar stöður eru enn ómannaðar fyrir veturinn. mbl.is/Árni Sæberg

Enn á eftir að ráða fólk til starfa í yfir 100 stöðugildi í leikskólum borgarinnar. Á tveimur vikum hefur tekist að ráða í 24 stöðugildi af þeim 132 sem ómönnuð voru þá. Eftir standa 108 ómönnuð stöðugildi. 

Á vef Reykjavíkurborgar kemur fram að í 64 leikskóla borgarinnar vanti 11 deildarstjóra, 66 leikskólakennara og 17 stuðningsfulltrúa. 

Í 36 grunnskóla borgarinnar eru átta kennarastöður ómannaðar, tíu stöður stuðningsfulltrúa og sex stöður skólaliða. Stöðugildin eru 25 talsins. 

Í frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum er óráðið í 114 stöðugildi en það jafngildir 226 starfsmönnum í 50% störf. „Þar af vantar 74 starfsmenn í störf með fötluðum börnum og ungmennum. Til samanburðar var í liðinni viku óráðið í 135 stöðugildi í frístundastarfinu.

Staðan er áþekk því sem var á sama tíma í fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert